Deilan milli Ísraels og Palestínu
Lokaverkefni 2014
Agnar, Abraham og Valdimar

Hvað í ósköpunum er hægt að gera?
Þessi deila sem hefur staðið í langan tíma virðist stöðugt fara versnandi frekar en að hún leysist, og óréttlætið bitnar á öllum. Ef við vissum leiðina til að leysa deiluna værum við búnir að fá Friðarverðlaun Nóbels. Það er samt nokkuð ljóst að það er ekki hægt að leysa þessa deilu nema allir gefi eftir og komi sér saman um að búa saman í kærleik og friði. Það er ekki hægt að bæta upp töpuð mannslíf eða sorgir manna en það er hægt að koma í veg fyrir að deilan haldi áfram en til þess þarf að sleppa fortíðinni. Það þarf að meta gróft hvað þarf að leiðrétta eftir að Ísraelsríki var stofnað en það er ekki hægt að leggja það niður og láta eins og það hafi ekki verið stofnað, það er komið til að vera en hefur stækkað sig of mikið. Palestína á sama rétt og Ísrael að því leyti. Það lítur ekki út fyrir að ríkin geti gert það sín á milli þannig að einhver sem báðar fylkingar treysta, þarf að taka það að sér og taka ákvörðun sem allir verða að una. Þessi staða eins og hún er í dag eykur bara á fordómum í garð múslíma og gyðinga þannig að báðir aðilar eru stöðugt að tapa.
Kannski væri best að koma því þannig upp að ef annar tæki augað úr hinum þá missti hann sjálfur bæði augun, þá mundi hann passa sig áður en hann gerði slíkt, en ekki „auga fyrir auga og tönn fyrir tönn“ eins og þeir eru að gera það í dag. því þannig mun heimurinn enda blindur og tannlaus.
